Forsíða » Vörur
fimm c
Vörur
Fyrirhugað er að útbúa fjölbreyttar vörur þar sem hugmyndafræði 5C er nýtt í ýmsu samhengi. Fyrsta varan eru 5C spilin, en von er á fleiri vörum þegar fram líða stundir.
fimm c
5C Vörur
Spli, bækur og bolir
5C vörurnar eru hugsaðar til þess að nýta hugmyndafræði 5C í fjölbreyttu samhengi við leik og störf.
5C spilastokkur
5C spilin eru ætluð til að vekja íþróttafólk, þjálfara og foreldra til umhugsunar um sálræna færni.
Hverju C-i fylgja tólf spil sem ýmist eiga að hjálpa til við að hefja umræður eða leysa verkefni sem tengjast skuldbindingu, samskiptum, einbeitingu, sjálfsstjórn og sjálfstrausti.
Spilin hafa meðal annars verið notuð í knattspyrnudeild Fylkis, fimleikadeild Ármanns, Afrekssviði Menntaskólans í Kópavogi og Afrekssviði Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Hægt er að nota þau við ýmsar aðstæður og á sveigjanlegan hátt. Þannig hafa mismunandi þjálfarar og kennarar fundið upp á nýstárlegum leiðum til að nota þau hjá sínum hópum, til dæmis;
- Þjálfarar hafa notað þau til að brydda á umræðum við leikmenn um C sem þeir eru að vinna í inni á æfingum.
- Foreldrar hafa notað þau til að eiga umræðu við börn sín um sálræna færni og lagt þeim fyrir verkefni.
- Kennarar í framhaldsskólum hafa sett fyrir verkefnatíma og umræðutíma út frá spilunum.
Spilin má panta hjá skrifstofu ÍSÍ og UMFÍ og kosta kr. 1.500 stokkurinn.
Vara
Væntanlegt
Vara
Væntanlegt
Vara
Væntanlegt